Samráðsfundur UEFA og knattspyrnusambanda í Evrópu fór fram í dag
UEFA hélt í dag samráðsfund með framkvæmdastjórum knattspyrnusambanda í Evrópu.
Á fundinum var farið yfir stöðu mála eins og hún er í dag með tilliti til Evrópukeppna félagsliða og landsleikja í öllum aldursflokkum.
Annar fundur verður haldinn síðar í mánuðinum þar sem farið verður yfir stöðu mála að nýju.