Ákvörðun mótanefndar um frestun leikja
Vegna óvissu um mótahald hefur Mótanefnd KSÍ tekið eftirfarandi ákvörðun varðandi næstu leiki í meistaraflokki, 2. flokki og 3. flokki.
Meistaraflokkur karla og kvenna
Öllum leikjum í meistaraflokki sem eru á dagskrá laugardaginn 8. ágúst hefur verið frestað.
Ákvörðun um leiki sunnudagsins 9. ágúst munu liggja fyrir í síðasta lagi kl. 14.00 föstudaginn 7. ágúst.
2. flokkur karla og kvenna
Öllum leikjum sem eru á dagskrá um næstu helgi, þ.e. laugardaginn 8. ágúst og sunnudaginn 9. ágúst hefur verið frestað.
3. flokkur karla og kvenna
Öllum leikjum sem eru á dagskrá um næstu helgi, þ.e. laugardaginn 8. ágúst og sunnudaginn 9. ágúst hefur verið frestað.