Moli á fleygiferð um landið
Moli (Siguróli Kristjánsson) er á fleygiferð um landið með "Komdu í fótbolta" verkefnið, sem felur í sér heimsóknir til minni sveitarfélaga um land allt. Moli hefur nú þegar farið í 22 heimsóknir víðs vegar um landið. Settar eru upp skemmtilegar og fjölbreyttar fótboltabúðir á hverjum stað til að efla áhuga iðkenda og styðja við bakið á knattspyrnustarfinu á staðnum.
Um er að ræða framhald á sama verkefni frá árinu 2019 sem vakti gríðarlega lukku og á þeim stöðum þar sem Moli var að koma annað árið í röð urðu miklir fagnaðarfundir. Smellið hér að neðan til að skoða verkefnið nánar og til að skoða myndir frá heimsóknum og dagskrána, sem verður uppfærð jafnóðum og heimsóknir bætast við.