Aukafundur stjórnar KSÍ - 17. júlí 2020
Aukafundur stjórnar KSÍ (án númers). Föstudaginn 17. júlí 2020 kl. 12:00 (fjarfundur).
Mættir (með fjarfundarbúnaði):
Aðalmenn í stjórn:
Guðni Bergsson formaður, Ásgeir Ásgeirsson, Gísli Gíslason, Ingi Sigurðsson, Magnús Gylfason, Ragnhildur Skúladóttir, Valgeir Sigurðsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fjarverandi aðalmenn í stjórn:
Haraldur Haraldsson, Borghildur Sigurðardóttir
Aðrir fundarmenn:
Ómar Smárason starfsmaður KSÍ sat fundinn og ritaði fundargerð.
------
Dagskrá:
Reglugerð KSÍ um viðmiðanir og sértækar ráðstafanir vegna heimsfaraldurs kórónaveiru (Covid-19).
Guðni Bergsson formaður KSÍ opnaði fundinn og reifaði málið.
Valgeir Valgeirsson formaður mótanefndar fór yfir vinnuna og tímalínuna á bak við reglugerðina, ýmis mál sem hafa komið upp og kynnti svo reglugerðina sjálfa.
Nokkrir stjórnarmenn tóku til máls og báru fram fyrirspurnir, Valgeir og Gísli Gíslason formaður laga- og leikreglnanefndar voru til svara.
Stjórnin samþykkti reglugerðina samhljóða.
Önnur mál.
Fleira var ekki á dagskrá og var fundi slitið kl. 13:00.