16-liða úrslit á föstudag og laugardag
16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna fara fram á föstudag og laugardag - sex leikir á föstudeginum 10. júlí og tveir á laugardeginum 11. júlí. Dregið verður í 8-liða úrslit í beinni útsendingu á Stöð 2 sport kl. 18:00 á laugardag.
Föstudagurinn 10. júlí
Valur - ÍBV
KR - Tindastóll
Þróttur R. - FH
Stjarnan - Selfoss
Fylkir - Breiðablik
Haukar - Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
Laugardagurinn 11. júlí
Þór/KA - Keflavík
ÍA - Augnablik
Smellið hér til að skoða leikina nánar
Allir fyrrverandi bikarmeistarar kvenna eru enn með í keppninni og ekkert félag utan þeirra sem leika í 16 liða úrslitum í ár hafa orðið bikarmeistarar. Valur hefur oftast orðið bikarmeistari, eða 13 sinnum, en skammt undan er Breiðablik með 12 bikarmeistaratitla. Selfoss er ríkjandi Mjólkurbikarmeistari og bættist í þennan hóp í fyrra þegar félagið vann bikarinn í fyrsta sinn.
Smellið hér til að skoða yfirlit yfir fyrri bikarmeistara og bikarúrslitaleiki
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net