• mið. 01. júl. 2020
  • Landslið

KSÍ og Margt smátt í samstarf um stuðningsmannavarning

Margt smátt og Knattspyrnusamband Íslands hafa skrifað undir samstarfssamning um framleiðslu, merkingar og og sölu á öllum stuðningsmannavarningi á vegum KSÍ næstu sex árin. Þar á meðal er nýja landsliðstreyjan og annar varningur frá PUMA er tengist landsliðum Íslands í fótbolta.

Nýtt og glæsilegt merki landsliða Íslands verður þar í forgrunni og verður varningurinn seldur í vefversluninni fyririsland.is, sem og á landsleikjum og öðrum sölustöðum.

Það er okkur mikill heiður að starfa með KSÍ að þessu risavaxna verkefni og við hlökkum mikið til að taka þátt í frekari landvinningum landsliðanna okkar á komandi árum“ segir Árni Esra Einarsson, einn eigenda Margt smátt. Á fyririsland.is má þegar kaupa ýmsan landsliðsvarning. Landsliðstreyjan sjálf kemur svo í sölu í kringum næstu mánaðarmót, en áhugasamir geta skráð netfang sitt þar og fengið tilkynningu þegar sala hefst.

Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ:  „Þessi fyrri partur árs hefur auðvitað óvenjulegur vegna Covid ástandsins en við  höfum engu að síður haldið okkar striki varðandi ýmis mikilvæg verkefni.  Eitt af þessum mikilvægu verkefnum er opnun á vefversluninni fyririsland.is í samstarfi við Margt smátt, sem mun bylta okkar nálgun varðandi sölu á stuðningsmannavarningi.“

Guðni Bergsson, formaður KSÍ:  „Það eru afar spennandi tímar framundan.  Nýtt landsliðsmerki og nýr landsliðsbúningur gegna lykilhlutverki í nýrri ásýnd KSÍ og landsliðanna.  Við erum að taka stórt skref í okkar starfsemi með opnun vefverslunar og hlökkum til samstarfsins við Margt smátt og væntum mikils af því.“

Vefsíðan fyririsland.is