Þremur leikjum Stjörnunnar í Pepsi Max deild karla frestað
Þremur leikjum Pepsi Max deildar karla hefur verið frestað þar sem meginþorri leikmanna meistaraflokks karla hjá Stjörnunni hefur verið settur í sóttkví.
Leikirnir sem um ræðir eru eftirfarandi:
- Stjarnan – KA 28. júní kl. 17.00
- FH – Stjarnan 5. júlí kl. 19.15
- Stjarnan – KR 9. júlí kl. 19.15
Nýir leiktímar verða ákveðnir síðar.