Keflavík spáð sigri í Lengjudeild kvenna
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kynningarfundur Lengjudeildar kvenna fór fram í dag, föstudag, og meðal efnis var hin árlega spá formanna, þjálfara og fyrirliða um lokastöðu liða.
Keflavík og Haukum er spáð góðu gengi í sumar, á meðan Fjölni og Völsung er spáð falli í 2. deild.
Spáin
1. Keflavík - 253 stig
2. Haukar - 220 stig
3. ÍA - 196 stig
4. Tindastóll - 189 stig
5. Augnablik - 144 stig
6. Víkingur R. - 131 stig
7. Afturelding - 105 stig
8. Grótta - 101 stig
9. Fjölnir - 58 stig
10. Völsungur - 35 stig