Miðasala á leiki í Pepsi Max og Lengjudeildum karla og kvenna fer fram í Stubb
Miðasala á leiki í Pepsi Max og Lengjudeildum karla og kvenna fer fram í Stubb.
Stubbur auðveldar stuðningsmönnum að kaupa miða á leiki í Pepsi Max og Lengjudeildunum, ásamt því að stuðningsmenn geta fylgt sínu liði.
Það sem stuðningsmenn geta gert í appinu:
-Keypt miða á leiki í Pepsi Max deild og Lengjudeild karla og kvenna.
-Fylgt sínu liði og séð auglýsingar frá þeim.
-Skoðað leikjaplan hjá sínu liði.
-Skoðað stöðu í Pepsi Max og Lengjudeildum.
Það sem félögin geta gert.
1. Sett inn auglýsingar sem birtast fyrir stuðningsmenn liðs.
2. Sent út tilkynningar á stuðningsmenn
3. Auðveldað miðasölu á leikdegi.
4. Yfirlit yfir miðasölu.
Miðarnir eru alfarið í appinu. Stuðningsmaður kaupir miða og virkjar svo við inngang, sýnir öryggisgæslu í hliðinu miðann í símanum og þarf svo að halda inni óvirkja takka í 2 sek þannig ekki sé hægt að nota miða aftur. Við það dettur miðinn strax út. Ef miði er ekki virkjaður eða notaður þá dettur hann út eftir leik/miðnætti og ekki hægt að nota.
Náðu í appið í dag. Hægt er að sækja það í App Store og Google Play.