Pepsi Max deild kvenna af stað á föstudag
Pepsi Max deild kvenna fer af stað á föstudag þegar Valur og KR mætast á Origo vellinum kl. 19:15.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, mætir á opnunarleik mótsins á föstudag.
Fyrsta umferðin verður öll leikin um helgina, þrír leikir fara fram á laugardaginn og einn á sunnudag.
Fyrsta umferð Pepsi Max deildar kvenna
Föstudagurinn 12. júní
Valur - KR á Origo vellinum kl. 19:15
Laugardagurinn 13. júní
Breiðablik - FH á Kópavogsvelli kl. 13:00
Þór/KA - Stjarnan á Þórsvelli kl. 15:00
Fylkir - Selfoss á Würth vellinum kl. 17:00
Sunnudagurinn 14. júní
ÍBV - Þróttur R. á Hásteinsvelli kl. 16:00