Breiðablik spáð sigri í Pepsi Max-deild kvenna 2020
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kynningarfundur Pepsi Max deildar kvenna fór fram í dag, fimmtudag, og meðal efnis var hin árlega spá formanna, þjálfara og fyrirliða um lokastöðu liða.
Samkvæmt spánni verður Breiðablik Íslandsmeistari og Selfoss í öðru sæti, þó Íslandsmeistararnir séu ekki langt undan. ÍBV og Þrótti R. er spáð falli.
Spáin
1. Breiðablik - 284 stig
2. Selfoss - 252 stig
3. Valur - 251 stig
4. Fylkir - 190 stig
5. KR - 178 stig
6. Stjarnan - 147 stig
7. Þór/KA - 124 stig
8. FH - 91 stig
9. ÍBV - 86 stig
10. Þróttur R. - 48 stig