Staðfest niðurröðun í Íslandsmótum meistaraflokka 2020
Mótanefnd KSÍ hefur staðfest niðurröðun leikja í Íslandsmótum meistaraflokka.
Á síðustu dögum hafa verið gerðar breytingar á leikjum í flestum af ofangreindum mótum.
Athygli er vakin á því að vegna óvissu með leikdaga í Evrópukeppnum félagsliða hefur leikjaniðurröðun Pepsi Max deildanna einungis verið staðfest til 1. ágúst.
Leikir í eftirfarandi mótum hafa því verið staðfestir:
Pepsi Max deild karla – Niðurröðun staðfest til 1. ágúst
Pepsi Max deild kvenna – Niðurröðun staðfest til 1. ágúst
Lengjudeild karla
Lengjudeild kvenna
2. deild karla
2. deild kvenna
3. deild karla
4. deild karla.