Breytingar á reglugerð um aga- og úrskurðarmál
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum 28. maí síðastliðnum breytingar á reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál og breytingar á starfsreglum aga- og úrskurðarnefndar. Breytingar þessar snúa að mestu leyti að lagfæringum á orðalagi reglugerðarinnar og starfsreglnanna en einnig hafa fáeinar efnislegar breytingar verið gerðar. Breytingarnar hafa verið kynntar aðildarfélögum í dreifibréfi nr. 10.
Smellið hér að neðan til að skoða dreifibréf þar sem nánar er fjallað um þessar breytingar.
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net