Staðfest niðurröðun í 1. umferð Mjólkurbikarsins
Mótanefnd KSÍ hefur staðfest niðurröðun leikja í 1. umferð Mjólkurbikars karla og kvenna.
Keppni í Mjólkurbikar karla hefst föstudagskvöldið 5. júní með tveimur leikjum, þar sem annars vegar mætast ÍR og KÁ á Hertz-vellinum í Breiðholti, og hins vegar Selfoss og Snæfell á JÁVERK-vellinum á Selfossi. Fimmtán leikir fara fram laugardaginn 6. júní og 1. umferðinni lýkur með 11 leikjum sunnudaginn 7. júní. Önnur umferð fer svo fram dagana 12.-14. júní.
Dagana 7. og 8. júní hefst keppni í Mjólkurbikar kvenna, en þá daga fara fram sjö leikir í 1. umferð. Fyrsti leikur umferðarinnar er viðureign ÍR og Áftaness á Herts-vellinum í Breiðholti. Önnur umferð Mjólkurbikars kvenna fer svo fram dagana 13. og 14. júní.
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net