Mót sumarsins - ný drög að leikjum
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur endurraðað mótum sumarsins og birt ný drög að leikjaniðurröðun sumarsins á vef KSÍ. Upphaf móta miðast við að staðan í þjóðfélaginu verði þannig að heilbrigðisyfirvöld heimili að leikir fari fram.
Gert er ráð fyrir því að öll mót sumarsins á vegum KSÍ fari fram, nema fyrirhuguð keppni varaliða í meistaraflokki karla.
Upphaf móta
Upphaf móta miðast við að félögin hafi hæfilegan tíma til að undirbúa leikmenn fyrir tímabilið. Ákvörðun um að flýta upphafi móts, og með því fjölga mögulega þeim leikjum sem fara fram án áhorfenda, getur haft áhrif á tekjur félaga.
Upphaf móta meistaraflokka
-Mjólkurbikar karla og kvenna hefst 5. júní.
-Meistarakeppni kvenna fer fram 6. júní.
-Meistarakeppni karla fer fram 7. júní.
-Pepsi Max deild kvenna hefst 12. júní.
-Pepsi Max deild karla hefst 13. júní.
-Önnur mót meistaraflokka hefjast 16.-19. júní.
Fjöldi leikja sumarið 2020
Meistaraflokkar - 1.170
Yngri flokkar - 2.780
Samtals - 4.950
Fjöldi liða sumarið 2020
Meistaraflokkur karla - 79
Meistaraflokkur kvenna - 29
Yngri flokkar karla - Um 370
Yngri flokkar kvenna - Um 190
Fjöldi KSÍ dómarastarfa sumarið 2020
KSÍ sér um að manna 3.800 dómarastörf í sumar. Þess má geta að flest dómarastörf í yngri flokkum eru mönnuð af félögunum, ekki KSÍ.
Margar áskoranir eru varðandi mótahald sumarsins í ljósi þess að mótin fara síðar af stað en hafði verið skipulagt. Fleiri ferðalög verða í miðri viku í 1.-3. deild karla, meira álag verður á leikmenn, dómara og vellina, birtutími hefur áhrif á tímasetningar leikja, íslenska haustveðrið er óútreiknanlegt og minna svigrúm verður til frestana.
Forráðamenn félaga eru vinsamlegast beðnir um að skoða vandlega sína leiki og koma athugasemdum á framfæri í síðasta lagi þriðjudaginn 12. maí á netfangið birkir@ksi.is.