UEFA tekur saman lista yfir verkefni aðildarlanda á tímum COVID-19
Á þessum fordæmalausu tímum eru mörg aðildarlönd UEFA með verkefni í gangi af ýmsum toga, til að hvetja fólk til dáða eins og KSÍ hefur gert með verkefninu #ÁframÍsland.
UEFA hefur nú á vefsíðu sinni tekið saman yfirlit þessara verkefna og þar á meðal er #ÁframÍsland á lista sambandsins.
#ÁframÍsland hefur verið í gangi frá 20. mars síðastliðnum og fengið frábærar viðtökur á miðlum KSÍ.
Hægt er að sjá öll myndböndin til þessa á Youtube rás KSÍ, eða á Instagram og Facebook síðum KSÍ.