KSÍ hefur sett af stað verkefnið Litblinda í fótbolta
Vissir þú að 1 af hverjum 12 körlum og 1 af hverjum 200 konum er litblind? Tölfræðilega séð er því líklegt að einn leikmaður í hverju byrjunarliði meistaraflokks karla sé litblindur.
KSÍ hefur sett af stað verkefnið Litblinda í fótbolta. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á stöðu litblindra þátttakenda í fótbolta (leikmanna, þjálfara, dómara, stuðningsmanna og annarra) og því hvaða áhrif það getur haft ef ekki er tekið tillit til þeirra í starfinu og skipulagningu þess - á æfingum og í leikjum. Hér er átt við liti á t.d. keilum og vestum, keppnisbúningum og öðru.
Markmiðið er að öll knattspyrnuhreyfingin og aðilar sem henni tengjast verði meðvituð um verkefnið í árslok 2020.
Hægt er að lesa frekar um litblindu í fótbolta á undirsíðu verkefnisins hér á vef KSÍ: