Róbert Daði Sigurþórsson fyrsti Íslandsmeistarinn í eFótbolta!
Róbert Daði Sigurþórsson er fyrsti Íslandsmeistarinn í eFótbolta, en hann bar sigurorð af Aroni Þormari Lárussyni í úrslitaleiknum, 4-2 samanlagt.
Aron Þormar vann Leif Sævarsson, LFG, 4-3 í undanúrslitunum á meðan Róbert Daði vann Tind Örvar Örvarsson 7-0 í hinum leiknum.
Fyrri leikurinn í úrslitaleiknum endaði með 2-1 sigri Arons Þormars, þó Kylian Mbappe hafi verið rekinn útaf eftir aðeins 30 mínútna leik. Róbert Daði kom hins vegar sterkur inn í seinni leikinn og vann þar frábæran 3-0 sigur og tryggði sér titilinn.
Til hamingju Róbert Daði!