Samkomur takmarkaðar við 20 manns
Heilbrigðisyfirvöld hafa kynnt að á miðnætti mánudaginn 23. mars taki gildi hert samkomubann. Allar samkomur verða takmarkaðar við 20 manns hvort heldur er í opinberum rýmum eða einkarýmum og jafnframt er krafa um að tveggja metra fjarlægðarviðmiðinu sé framfylgt. Hreinlæti og sóttvörnum skal fylgt eftir sem áður.
Hér að neðan eru nánari upplýsingar um hert samkomubann, ásamt leiðbeiningum fyrir áhættuhópa og einstaklinga sem eru í umgengni við þá sem teljast í áhættuhópi. Fulltrúar knattspyrnuhreyfingarinnar eru hvattir til að kynna sér allar upplýsingarnar vel.
Samkomubann hert - Nánari upplýsingar
Leiðbeiningar fyrir áhættuhópa
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net