Fimm beinar útsendingar frá landsleikjum í byrjun mars
Alls voru fimm leiki í beinni útsendingu á miðlum KSÍ á dögunum, en um var að ræða leik A kvenna á Pinatar Cup og U19 kvenna á La Manga.
Leikir A landsliðs kvenna gegn Norður Írlandi og Úkraínu voru sýndir í opinni dagskrá á meðan leikur liðsins gegn Skotlandi var aðeins sýndur á Íslandi í ljósi útsendingar BBC frá honum á Bretlandseyjum.
Báðir leikir U19 ára landsliðs kvenna voru sýndir í opinni dagskrá.
KSÍ hefur tekið þetta skref með það fyrir augum að bæta enn frekar þjónustu við sína fylgjendur.
Pinatar Cup 2020 – A kvenna
Ísland - Norður Írland
Leikurinn var í opinni dagskrá á Youtube.
3.847 áhorf.
Ísland - Skotland
Leikurinn var geo-blocked á Mycujoo og aðeins sýndur á Íslandi vegna útsendingar BBC frá leiknum.
2.873 áhorf.
Ísland - Úkraína
Leikurinn var í opinni dagskrá á Mycujoo
12.326 áhorf.
Hvaðan komu áhorfendur leiksins gegn Úkraínu?
32% áhorfenda frá Úkraínu.
27,4% áhorfenda frá Íslandi.
21,2% áhorfenda frá Rússlandi.
5,2% áhorfenda frá Kasakstan.
U19 kvenna á La Manga 2020
Ísland - Sviss
Í opinni dagskrá á Youtube
1.517 áhorf.
Ísland - Þýskaland
Í opinni dagskrá á Mycujoo.
1.384 áhorf.