Milliriðlum EM yngri landsliða frestað
Uppfærð frétt.
Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) hefur tilkynnt að öllum milliriðlum í keppni yngri landsliða (EM U17 og EM U19 karla og kvenna), sem fara áttu fram á tímabilinu 14. mars til 14. apríl, hafi verið frestað um óákveðinn tíma. U17 kvenna átti að leika í milliriðli í Ungverjalandi 18.-24. mars, U19 karla átti að leika í milliriðli á Ítalíu 25.-31. mars, og U19 kvenna átti að leika í milliriðli í Hollandi 8.-14. apríl.
Mynd með grein: Vefur UEFA