Opið fyrir skráningu í Íslandsmótið í eFótbolta
Íslandsmótið í FIFA fer fram dagana 28. og 29. mars næstkomandi og verður það haldið í Smárabíói. Dagsetningar mótsins voru valdar í samráði við FIFA vegna landsleikjadaga. Spilað verður í FIFA Ultimate Team, og leikið „heima og heiman“ í hverri viðureign. Opnað hefur verið fyrir skráningu í mótið og er skráningarfrestur til 25. mars.
Nánari upplýsingar um Íslandsmótið í eFótbolta og skráningu