U19 kvenna - Frábær 2-0 sigur gegn Þýskalandi
U19 ára landslið kvenna vann frábæran 2-0 sigur gegn Þýskalandi, en leikið var á La Manga.
Ída Marín Hermannsdóttir og Barbára Sól Gísladóttir skoruðu mörk Íslands í leiknum, en þetta var í fyrsta sinn sem U19 kvenna vinnur Þýskakland.
Ísland vann því alla þrjá leiki sína á La Manga, gegn Sviss, Ítalíu og Þýskalandi.
Næsta verkefni liðsins eru milliriðlar undankeppni EM 2020, en þar er liðið með Hollandi, Skotlandi og Rúmeníu í riðli og verður hann leikinn í apríl.