Ísland mætir Úkraínu á þriðjudag
Ísland mætir Úkraínu á þriðjudag í þriðja, og síðasta, leik sínum á Pinatar Cup á Spáni.
Stelpurnar unnu Norður Íra í fyrsta leik sínum á mótinu 1-0 en töpuðu með sama mun gegn Skotlandi.
Ísland og Úkraína hafa mæst sex sinnum. Ísland hefur unnið þrjá, Úkraína tvo og einn hefur endað með jafntefli.
Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á Mycujoo.