10 þátttökuleyfi útgefin á fyrri fundi leyfisráðs
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrri fundur leyfisráðs KSÍ í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2020 fór fram á föstudag. Teknar voru fyrir leyfisumsóknir félaga í efstu tveimur deildum karla en einnig var tekin fyrir leyfisumsókn Vals í Pepsi Max deild kvenna um þátttökuleyfi í Meistaradeild UEFA fyrir kvennalið (UEFA Women‘s Champions League).
Alls voru 10 umsóknir um þátttökuleyfi samþykktar á fundinum en afgreiðslu leyfisumsókna 15 félaga var frestað um eina viku. Ráðið kemur aftur saman á föstudag í næstu viku.
Samþykktar leyfisumsóknir á fundi leyfisráðs 6. mars:
Samþykktar leyfisumsóknir í Pepsi Max deild karla:
- Fylkir
- HK
- Stjarnan
- Valur
Samþykktar leyfisumsóknir í Meistaradeild UEFA fyrir kvennalið
- Valur
Samþykktar leyfisumsóknir í 1. deild karla:
- Grindavík
- Keflavík
- Leiknir R.
- Magni
- Víkingur Ó.