• fim. 05. mar. 2020
  • Landslið
  • U19 kvenna

U19 kvenna - 4-1 sigur gegn Sviss

U19 ára landslið kvenna vann mjög góðan 4-1 sigur gegn Sviss á La Manga, en Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði þrennu og Barbára Sól Gísladóttir eitt.

Ísland var betri aðilinn allan tímann, þær pressuðu vel á Sviss og voru 3-1 yfir í hálfleik. Sveindís Jane bætti svo við síðasta markinu í byrjun síðari hálfleiks og 4-1 sigur staðreynd.

Liðið mætir næst Ítalíu á laugardaginn og hefst sá leikur kl. 13:00 að íslenskum tíma.

Byrjunarlið Íslands

Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (M)

Barbára Sól Gísladóttir

Hildur Þóra Hákonardóttir

Katla María Þórðardóttir

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir

Eva Rut Ásþórsdóttir

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (F)

Ída Marín Hermannsdóttir

Hafrún Rakel Halldórsdóttir

Karen María Sigurgeirsdóttir

Sveindís Jane Jónsdóttir