Drög að leikjaniðurröðun í mótum sumarsins hefur verið birt á vef KSÍ
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Drög að leikjaniðurröðun í mótum sumarsins hefur verið birt á vef KSÍ. Félög eru vinsamlegast beðin um að skoða vandlega sína leiki og koma athugasemdum á framfæri í síðasta lagi þriðjudaginn 10. mars á netfangið birkir@ksi.is.
Mjög mikilvægt er að allar óskir/athugasemdir komi í einu lagi frá hverju félagi en ekki frá einstökum þjálfurum. Borið hefur á því að þjálfarar einstakra flokka hafa lagt fram óskir um breytingar á leikjum sem stangast á við aðra viðburði hjá viðkomandi félagi.
Óskir um breytingar skulu vera skýrar og flokkaðar eftir hverjum aldursflokki fyrir sig.
Félög eru vinsamlegast beðin um að virða ofangreindan frest svo að vinna við skipulagningu mótanna tefjist ekki.
Meðfylgjandi í viðhengi er minnislisti sem starfsmenn félaga eru beðnir um að hafa til hliðsjónar við yfirlestur.
Minnislisti
Mótin á vef KSÍ:
https://www.ksi.is/mot/felog/leikir-felaga/
https://www.ksi.is/mot/leikir-og-mot/oll-mot/
https://www.ksi.is/mot/felog/thatttaka-felags/