A kvenna - Sandra María Jessen inn í hópinn fyrir Pinatar Cup
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandra María Jessen hefur verið kölluð inn í hóp A-landsliðs kvenna sem tekur þátt í æfingamóti á Spáni í næstu viku.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir getur ekki tekið þátt í mótinu, en hún getur ekki ferðast með liðinu í ljósi kórónuveirunnar sem hefur greinst á Ítalíu og getur valdið Covid-19 sjúkdómnum.
Sandra María hefur leikið leikið 28 leiki fyrir A-landslið kvenna og skorað í þeim 6 mörk.
Ísland mætir Norður Írlandi, Skotlandi og Úkraínu á mótinu.