Málþing föstudaginn 21. febrúar - Dagskrá
KSÍ stendur fyrir málþingi í tengslum við Ársþing KSÍ 2020 sem haldið er í Ólafsvík.
Málþingið fer fram föstudaginn 21. febrúar í safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju og hefst það kl. 17:00.
Ragnhildur Skúladóttir verður málþingsstjóri.
Boðið verður upp á léttar veitingar að málþingi loknu.
Dagskrá
17:00-17:05 - Setning málþings
17:05-17:35 - Kynning á tillögum og umræður.
17:35-17:45 - Heildarendurskoðun kvennaknattspyrnu og stefnumótun til framtíðar - Samþykkt 73. ársþing KSÍ
17:50-18:15 - Sóknarfæri - Kynning á vinnu HK og KPMG varðandi stefnumótun og markmiðasetningu til framtíðar
18:15-18:30 - Ferðaþátttökugjald
18:30-19:00 - Rekstrarumhverfi knattspyrnuhreyfingarinnar