Drög að niðurröðun 4. deildar karla 2020
Mótanefnd KSÍ hefur birt drög að leikjum 4. deildar karla keppnistímabilið 2020.
Fjórir riðlar verða í mótinu og átta lið í hverjum riðli. Leikin er tvöföld umferð og eru því 14 leikir á lið.
Fjögur ný lið mæta til leiks í sumar:
Íþrótta- og boltafélag uppsveita (ÍBU) - Árnessýslu, Suðurlandi
Knattspyrnufélagið Skandinavía - Reykjavík
Knattspyrnufélagið Bessastaðir (KFB) - Garðabæ
Knattspyrnufélagið Blix - Kópavogi
Þrjú félög sem tóku þátt árið 2019 tilkynntu ekki um þátttöku í ár. Þau eru:
Fenrir
Kóngarnir
Úlfarnir
Niðurröðun hvers riðils fyrir sig má sjá hér að neðan.