Lengjubikar kvenna af stað á föstudag
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikar kvenna fer af stað á föstudag með leik nýkrýndra Reykjavíkurmeistara Fylkis og Stjörnunnar.
Leikurinn fer fram í Egilshöll og hefst kl. 21:00.
Tveir leikir fara fram á laugardag. Þar mætast annars vegar Breiðablik og Selfoss og Þór/KA og Valur hins vegar.
Föstudagurinn 14. febrúar
Fylkir - Stjarnan í Egilshöll kl. 21:00
Laugardagurinn 15. febrúar
Breiðablik - Selfoss í Fífunni kl. 11:00
Þór/KA - Valur í Boganum kl. 17:00