Afreksæfingar KSÍ á Norðurlandi miðvikudaginn 12. febrúar
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afreksæfingar KSÍ verða á ferðinni miðvikudaginn 12. febrúar á Norðurlandi.
Æfingarnar, sem eru bæði fyrir stúlkur og drengi, fara fram í Boganum á Akureyri.
Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfarar frá KSÍ, stjórna æfingunum ásamt þjálfurum af Norðurlandi.
Mæting er hjá drengjum kl. 10:30 og hjá stúlkum er hún kl. 12:00.