Smáforrit frá IFAB um knattspyrnulögin
IFAB, Alþjóðanefnd knattspyrnusambanda, gaf nýlega út smáforrit þar sem hægt er að kynna sér knattspyrnulögin.
Í smáforritinu eru allar upplýsingar um knattspyrnulögin settar fram á aðgengilegan hátt og er hægt að sjá nýjustu breytingar á þeim hverju sinni með auðveldum hætti.
Hægt er að lesa frekar um smáforritið á vef IFAB og er tengill inn á hann hér að neðan:
Smáforritið má finna á App Store og Google Play undir IFAB.