Allur ágóði af leik Þórs og KA í Kjarnafæðismótinu rennur óskiptur til Bjarna Hrannars Héðinssonar
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Allur ágóði af stórleik Þórs og KA í A-deild Kjarnafæðimótsins rennur óskiptur til fjölskyldu Bjarna Hrannars Héðinssonar
Leikurinn fer fram næstkomandi laugardag, 1. febrúar, klukkan 13:30 í Boganum.
Bjarni Hrannar Héðinsson, dómari og formaður Knattspyrnudómarafélags Norðurlands, hefur glímt við alvarleg veikindi síðustu mánuði. Hann gengur nú í gegnum langa og stranga endurhæfingu.
Um er að ræða lykilleik í baráttunni um sigur í A-deild Kjarnafæðimótsins.
Aðgangseyrir á leikinn er 500 krónur, en frítt fyrir 16 ára og yngri.
Athugið að posar verða á staðnum í boði Ljósgjafans.
Þeir sem komast ekki á leikinn en vilja engu að síður styðja þetta góða málefni geta lagt inn á reikning í eigu KDN, kt. 461207-0490 rnr. 0565-26-210100.