U17 karla - 1-2 tap gegn Tadsíkistan
U17 ára landslið karla tapaði 1-2 gegn Tadsíkistan í fyrsta leik sínum á móti í Hvíta Rússlandi.
Tadsíkistan komst yfir á 26. mínútu en Danijel Dejan Djuric jafnaði metin á 55. mínútu með marki úr víti. Það var svo Tadsíkistan sem skoraði síðasta mark leiksins á 73. mínútu.
Ísland mætir næst Georgíu á þriðjudaginn og hefst sá leikur kl. 11:10.