• fös. 17. jan. 2020
  • Landslið
  • U17 karla

U17 karla - Ísland mætir Tadsíkistan á sunnudag

Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

U17 ára landslið karla mætir Tadsíkistan á sunnudag í fyrsta leik liðsins á móti í Hvíta Rússlandi.

Leikurinn hefst kl. 12:20 að íslenskum tíma og verður hægt að horfa á hann í beinni útsendingu á Youtube rás knattspyrnusambands Hvíta Rússlands.

Youtube rás

Liðin mættust í fyrsta sinn á sama móti fyrir ári, en Ísland vann þann leik 2-1.

Ísrael og Georgía eru hin tvö liðin í riðlinum, en Ísland mætir Georgíu á þriðjudag og Ísrael á fimmtudag.