• fim. 16. jan. 2020
  • Landslið

Afreksæfingar KSÍ á Norðurlandi 22. janúar

Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afreksæfingar KSÍ fara fram á Norðurlandi 22. janúar í Boganum á Akureyri, en um er að ræða æfingar fyrir stúlkur og drengi.

Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen þjálfarar frá KSÍ verða á æfingunum ásamt þjálfurum félaga á Norðurlandi.

Drengir æfa kl. 11:00-12:30 og er mæting 30 mínútum fyrir upphaf æfingar, eða kl. 10:30.

Stúlkur æfa kl. 12:30-14:00 og er mæting 30 mínútum fyrir upphaf æfingar, eða kl. 12:00.

Dagskrá og hópar