Tillögur og málefni fyrir ársþing berist eigi síðar en 22. janúar
KSÍ minnir á að tillögur og málefni þau er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þingi skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing, eða í síðasta lagi miðvikudaginn 22. janúar nk.Haukur Hinriksson lögfræðingur á skrifstofu KSÍ (haukur@ksi.is) tekur við tillögum og veitir aðstoð við uppsetningu þeirra sé þess óskað.
Ársþing KSÍ, það 74. í röðinni, fer fram laugardaginn 22. febrúar í félagsheimilinu Klifi, Ólafsvík.