Ísland í E riðli í undankeppni UEFA eEURO 2020
Dregið hefur verið í riðla í undankeppni UEFA eEURO 2020 og er Ísland í E riðli, en leikið er í PES 2020.
Í riðlinum ásamt Íslandi eru Rússland, Pólland, Austurríki og Ísrael. Leikirnir munu fara fram á tímabilinu mars - maí.
Sigurvegarar riðlanna tíu fara áfram í lokakeppnina ásamt þeim 6 liðum með bestan árangur í öðru sæti.
Lokakeppnin fer fram í London 9. og 10. júlí