Vel sóttur vinnufundur með leyfisfulltrúum félaga
Árlegur vinnufundur með endurskoðendum og leyfisfulltrúum félaga var haldinn í höfuðstöðvum KSÍ þriðjudaginn 7. janúar sl.
Fundurinn, sem stóð yfir í u.þ.b. 75 mínútur, var að venju vel sóttur af fulltrúum félaga sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ.
Á fundinum fór Haukur Hinriksson, leyfisstjóri KSÍ, yfir praktískt atriði og Óskar Örn Guðbrandsson fór yfir rafræn skil á leyfisgögnum í gegnum Microsoft Teams.
Því næst fór Birna María Sigurðardóttir, endurskoðandi hjá Deloitte, yfir áhersluatriði við skil á fjárhagsgögnum á nýju leyfistímabili og Lúðvík Georgsson, formaður leyfisráðs KSÍ, fór yfir þær breytingar sem orðið hafa á leyfisreglugerð KSÍ.
Fyrir neðan má nálgast glærukynningar frá vinnufundi 2020.
Glærukynningar:
Breytingar á leyfisreglugerð, útgáfa 4.2. (Lúðvík S. Georgsson)
Fjárhagslegir þættir (Birna María Sigurðardóttir)