Byrjendanámskeið fyrir dómara haldið hjá Gróttu 15. janúar
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá Gróttu í Gróttuheimilinu miðvikudaginn 15. janúar.
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Gróttu og hefst kl. 19:30. Námskeiðið stendur yfir í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.
Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi.
Námskeiðið er ókeypis.
Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.
100% viðvera á námskeiði skilyrði.
Skráning er hafin á magnus@ksi.is