Glódís Perla, Gylfi Þór og Sara Björk á meðal 10 efstu í kjöri íþróttamanns ársins 2019
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Glódís Perla Viggósdóttir, Gylfi Þór Sigurðsson og Sara Björk Gunnarsdóttir eru á meðal 10 efstu í kjöri íþróttamanns ársins 2019.
Samtök íþróttafréttamanna hafa birt listann yfir þá tíu íþróttamenn sem hlutu flest atkvæði í kjöri íþróttamanns ársins 2019.
Sara Björk var valinn íþróttamaður ársins 2018, en úrslitin verða kynnt í beinni útsendingu á RÚV laugardagskvöldið 28. desember og hefst hún kl. 19:40.