74. ársþing KSÍ í félagsheimilinu Klifi, Ólafsvík 22. febrúar 2020
74. ársþing KSÍ verður haldið í félagsheimilinu Klifi, Ólafsvík 22. febrúar 2020.
Í samræmi við grein 10.1. í lögum KSÍ skulu tillögur að laga- og/eða reglugerðarbreytingum sem óskað er eftir að teknar verði fyrir á knattspyrnuþingi, sendar stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þingið eða í síðasta lagi miðvikudaginn 22. janúar nk.
Þingið verður sett kl. 11:00 laugardaginn 22. febrúar og er gert ráð fyrir að því ljúki um kl. 17:00 sama dag.
Nánari dagskrá ásamt upplýsingum verður send sambandsaðilum síðar.