Dregið í milliriðla og undankeppni U17 og U19 karla á þriðjudag
Dregið verður í milliriðla undankeppni EM 2020 og undankeppni EM 2021 hjá U17 og U19 karla á þriðjudag.
Kl. 08:00 hefst dráttur í undankeppni EM 2021 hjá U17 karla.
Kl. 09:00 hefst dráttur í undankeppni EM 2021 hjá U19 karla.
Kl. 10:00 hefst dráttur í undankeppni EM 2022 hjá U19 karla, en um er að ræða nýtt skipulag fyrir þá lokakeppni.
Kl. 11:00 hefst dráttur í milliriðla undankeppni EM 2020 hjá U19 karla.