Dregið í milliriðla U17 og U19 kvenna
Dregið hefur verið í milliriðla undankeppni EM 2020 hjá U17 og U19 ára landsliðum kvenna.
U19 ára landslið kvenna er í riðli með Hollandi, Skotlandi og Rúmeníu. Riðillinn verður leikinn í Hollandi 8.-14. apríl.
U17 ára landslið kvenna er í riðli með Ungverjalandi, Rússlandi og Rúmeníu. Riðillinn verður leikinn í Ungverjalandi 18.-24. mars.
Aðeins eitt lið úr riðlunum kemst áfram í úrslitakeppnina.