Dregið í milliriðla U17 og U19 kvenna á föstudag
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á föstudaginn skýrist hvaða liðum U17 og U19 ára landslið kvenna mæta í milliriðlum undankeppni EM 2020.
Dregið verður í riðla hjá U19 kvenna kl. 10:00 að íslenskum tíma, en kl. 10:40 hjá U17 kvenna.
Á föstudag verður einnig dregið í undankeppni EM 2021 hjá bæði U17 og U19 kvenna. Hjá U17 kvenna hefst drátturinn kl. 08:00, en kl. 09:00 hjá U19 kvenna.