Breytingar á reglugerð KSÍ um knattspyrnumót
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á fundi stjórnar KSÍ þann 22. nóvember sl., samþykkti stjórn KSÍ breytingar á reglugerð KSÍ um knattspyrnumót.
Breytingar þessar varða hlutgengi leikmanna í 2.-, 3.- og 4. aldursflokki. Einnig er um að ræða breytingar sem varða m.a.:
- Ákvæði til varnar ólögmætri veðmálastarfsemi og hagræðingu úrslita
- Viðurlagaákvæði vegna skilyrða um heimaalda leikmenn
- Ákvæði er varðar frestun leikja í Íslandsmóti meistaraflokks kvenna
- Heimild til tilfærslna á leikjum í lokaumferð deilda
- Hlutgengi eldri leikmanna í 2. flokki kvenna
Eru aðildarfélög hvött til að kynna sér þessar breytingar gaumgæfilega.