Afreksæfingar KSÍ - Þjálfum saman á Suðvesturlandi
Hópur hefur verið valinn fyrir afreksæfingar KSÍ/Þjálfum saman á Suðvesturlandi miðvikudaginn 4. desember.
Um er að ræða æfingar fyrir stúlkur fæddar 2004 og 2005, en hún fer fram í Skessunni, Kaplakrika, og er mæting kl. 16:30.
Að þessu sinni eru æfingarnar í samstarfi við FH og verða þjálfarar frá þeim félögum á æfingunni ásamt þjálfurum frá KSÍ.