Dagskrá formanna- og framkvæmdastjórafundar 23. nóvember
KSÍ býður aðildarfélögum sambandsins til formanna- og framkvæmdastjórafundar laugardaginn 23. nóvember 2019 í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli.
Fundurinn verður settur kl. 13:00 með ávarpi formanns og gert er ráð fyrir að formleg dagskrá standi til kl. 16:00.
Fulltrúar aðildarfélaga KSÍ eru hvattir til að fjölmenna og skrá sig á fundinn með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan:
Skráning
Drög að dagskrá:
13:00 Setning fundar
13:15 Mótamál
14:15 Fjármál félaganna
14:45 Starfshópur um endurskoðun kvennaknattspyrnu / leyfiskerfi
15:15 Reglugerðarbreytingar
15:30 Önnur mál
16:00 Veitingar
Mynd með grein: Hafliði Breiðfjörð, Fótbolti.net