U19 karla - Sæti í milliriðlum tryggt
U19 ára landslið karla tryggði sér sæti í milliriðlum undankeppni EM 2020 með 4-2 sigri gegn Albaníu.
Atli Barkarson, Ísak Snær Þorvaldsson, Andri Lucas Guðjohnsen og Karl Friðleifur Gunnarsson skoruðu mörk Íslands, en þau komu öll í síðari hálfleikinn. Strákarnir voru 0-2 undir í hálfleik, en áttu frábæran síðari hálfleik.
Dregið verður í milliriðla 3. desember.